Hér á eftir fylgir stutt en hnitmiðuð samantekt á helstu atburðum þessa árs í lífi mínu.
Lesa meira af „Árssamantekt 2006″
Hér á eftir fylgir stutt en hnitmiðuð samantekt á helstu atburðum þessa árs í lífi mínu.
Lesa meira af „Árssamantekt 2006″
Í dag fór ég í annað brúðkaupið á þessu ári, það þriðja á ævinni. Að þessu sinni voru gefin saman Þóra og Róbert, góðvinur minn frá fornri tíð. Hjónavígslan fór fram í Akureyrarkirkju undir stjórn séra Svavars. Athöfnin var falleg og ræða Svavars einnig. Umtalsverða kátínu vakti fljótfærni organistans er hann greip fram í fyrir Svavari á milli málsgreina.
Ég óska brúðhjónunum alls hins besta.
Nýlega las ég grein á netinu þar sem nafn Sasser ormsins kom upp. Þá varð mér hugsað til þess að í um þrjú til fjögur ár hef ég sloppið við hvers kyns óværu á tölvunum mínum (Windows XP Home/Pro, Windows 2000). Vefþjónninn sem áður keyrði Windows 2000 var eina vélin sem fékk vírusvörn til afnota, þó ekki til annars en að sía póst sem streymdi þar í gegn. Það eina sem komist hefur inn hjá mér á þessum tíma var Sasser ormurinn, en þá var ég að setja upp XP Home SP1 og nettengdur á meðan. Mjög óheppilegt, því ormurinn var kominn inn nánast samtímis því sem uppsetningunni lauk. Sjálfur hef ég engin meðöl brúkað á borð við vírusvarnir og hreinsiforrit í fáein ár, með góðum árangri.
Reglur þeirra og kúnstir fara örlítið í skapið á mér í dag. Þannig er málum háttað að einu sinni í mánuði þurfa atvinnulausir (sem þiggja bætur) að tilkynna sig til Svæðisvinnumiðlunar. Tímabilið er jafnan frá 20. til 25. hvers mánaðar, og var desember engin undantekning. Flestir kannast við annríkið og stressið sem jafnan er undanfari jólanna, og ég var ekki alveg undanþeginn því. Því fór svo að ég gleymdi að skrá mig á vef Vinnumálastofnunar. Afleiðingar þess? Engar atvinnuleysisbætur. Ég gerði mér þetta ljóst fyrst á miðvikudaginn, og sendi bæði tölvupóst og hringdi vegna þess. Þá var mér gert ljóst að ekkert yrði aðhafst né nokkur skýring tekin til greina fyrr en mér hefði borist bréf frá þeim. Merkilegt nokk. Klukkan 17:00 í dag fann ég bréf í póstkassanum frá Svæðisvinnumiðlun, umtalsvert eftir að þeir lokuðu skrifstofum sínum. Bréfið var dagsett 27. desember. Í því stóð að ég yrði að gera grein fyrir því hvers vegna ég hafi ekki skráð mig innan sjö daga frá dagsetningu bréfsins. Sjáum nú til… Það þyrfti þá að vera fyrir 2. janúar, eða daginn sem þeir opna næst. Einstaklega hugulsamt af þeim.
Ef til vill er ég að mála skrattann á vegginn. Hver veit nema þetta séu manneskjur sem starfa þarna? Manneskjur, með vott af skilningi og samúð.
Í dag hef ég verið þungt haldinn af sköpunargleði. Fór hamförum í þjóðskrárleitarvél minni með AJAX og Smarty að vopni, hlutbundna forritun að leiðarljósi. Fáeinum tímum og tveimur hugdettum síðar rissaði ég á blöð uppköst að fyrirtækjamerkjum: eitt til eigin afnota, annað fyrir gamlan viðskiptavin. Þegar hér er komið álít ég réttast að leggja mig áður en um þverbak keyrir.