Fólk er í eilífum vandræðum með að finna viðeigandi jólagjafir. Sumum er nánast ómögulegt að gera til geðs, en þó leynast inn á milli þeir sem eru ánægðir með flest. Það er jú hugurinn sem skiptir máli. Svo má að sjálfsögðu ekki gleyma þeim sem telja sér trú um hvað sem þeir gefi sé ekki nógu gott, þrátt fyrir ítrekaðar mótbárur viðtakenda. Hvað sem því líður, fylgir hér stuttur listi sem hafa má í huga við val á gjöf handa mér þetta árið. Það skal þó skýrt tekið fram að ég geri mig ánægðan með flest nema kerti og spil, og ég fæ víst yfirdrifið nóg af fötum þetta árið. ;)

Ég hef tekið miklu ástfóstri við rithöfundinn George R. R. Martin. Ég á þegar Dreamsongs bókina, en vildi gjarnan eignast Song of Ice and Fire bækurnar. Þá er ég líka svolítið spenntur fyrir bókinni um Bono, söngvara U2, svo ekki sé minnst á eldri bækur Jack Higgins (nýjustu kiljurnar á ég fyrir). Orða- og málfræðibækur, íslenskar sem enskar eru einnig afar vel þegnar. Helst vil ég eiga bækurnar á frummálinu.

Diskur Eric Clapton og J. J. Cale, The Road to Escondido er áhugaverður, sem og U2 safnið 18 Singles. Völkerball með Rammstein kitlar svolítið líka.
Hringadróttinssögu vildi ég gjarnan eiga í lengri útgáfunni á DVD.

Fyrst að ég er að þessu á annað borð, þætti mér ákaflega vænt um þrílyft einbýlishús með sundlaug í bakgarðinum og vænum bílskúr, svo ekki sé nú minnst á vinningstölurnar í lottóinu fyrir næstu tvö árin (þá fengist ég kannski til að taka þátt). :D